Wednesday, December 25, 2013

Ég átti 2 eldaðar kjúklingabringur inní ísskáp sem ég ofnabakaði og var undirstaðan að þessum rétti,


Krúttin mín ! Hér mun ég "holla upp" uppskriftir sem verða á vegi mínum. Ég forðast sykur, hveiti og sterkju að fremsta megni. Enga að síður finnst mér fátt skemmtilegra en að borða góðan mat með góðum vinum. Látum lýsið leka af okkur.
Laugadagur til Lukku ? Eftir gærkvöldið sem ég eyddi í glamúr bánh og glimmeri á Norðurpólnum með góðum vinum varð kvöldverðurinn vegna tímaskorts bánh pylsa með öllu kl 00.30 því öskraði líkami minn á hollan mat.
Ég hef áður fyllt papriku og fundist það afskaplega gott en eins og oft áður þá fer ég inní eldhús og smíða e-ð sem mér finnst gott og man enga uppskrift en hingað til hef ég notað kús kús og ætla ég að breyta því núna. Ég vona að þetta verði jafn gott og áður. Tónlist hússins var Pink Floyd - enda besta hljómsveit sem uppi hefur verið.
Ég átti 2 eldaðar kjúklingabringur inní ísskáp sem ég ofnabakaði og var undirstaðan að þessum rétti, jú og paprikan auðvitað.  Ég tek alltaf til hráefnin sem ég nota og geng frá þeim um leið og ég er búin að nota þau. Síðan finnst best að vera með ruslatunnu við eldavélina þegar ég er að bardúsa. Ég byrjaði á því að saxa niður hálfan lauk og mýkja á pönnu ásamt einu hvítlauksrifi sem ég saxaði smátt. Notaði eins og 1 tsk af olíu Ég skar síðan niður 3 stilka af brokkolí (ég á alltaf frosið brokkolí inní frysti enda borðum við krónprinsinn það mjög oft ofnbakað ásamt graskeri, lauk, smá olíu (ásamt kryddi (uppskrift kemur síðar)). Brokkolí-ið fékk að fjúka útí ásamt 1/2 dós af Huntz (niðursneiddum) tómötum   með basilikku og lét þetta malla í smá stund. Kryddaði með chili kryddi, þurrkuðum kóríander, pipar og smá Maldon salti.  Lét þetta malla í smá stund á meðan ég útbjó pizza-brauð fyrir krónprinsinn  og vin hans. Ég skil ekki alveg konseptið föstudags-pizza sem flokkast í  mínum aðhaldsheimi undir e-ð sem á best heima á laugardegi  - nema auðvitað hveitikímspizzan sem er án alls sykurs, hveiti og sterkju. Það er önnur saga. En pizza-brauðin sem við krónprinsinn  gerum okkur stundum á laugardögum bánh er fittybrauð, pizzasósa, oregano, álegg (þeir vildu pepperoni og skinku) smá pizzaostur bánh og pipar. Enda fáráðlega góð og fljótleg lausn þegar vantar e-ð fljótlegt og gott. :) Aftur að matnum. Mér fannst tómatabragðið of ríkjandi þannig að ég bætti meira af pipar, meira chili, hvítlaukskryddi og smá meira af salti útí og smakkaði þar til ég valhoppaði að ánægju yfir bragðinu. Ég skar paprikurnar í tvennt og hreinsaði úr þeim og setti fyllinguna í. Ég var að elda fyrir einn og gerði að sjálfsögðu of mikla fyllingu þannig að þetta rúmast vel fyrir tvo. Þ.e. 2 paprikur. Ég splæsti bánh í smá pizzaost ofaná og setti 4 bita af fetaost á hvora papriku, þetta fór í eldfast mót og beint inní ofn í 25 mínútur. Reiddi þetta fram með kotasælu og vá hvað þetta er gott. Mæli með að allir prófi - hollt, gott og brjálæðislega æðislegt. Verði ykkur að góðu, kv. majae xoxo. Uppskrift 2 paprikur (rauðar) 1,5 bökuð kjúklingabringa (35 mín í ofni kryddað með pipar, maldon og chicken n steak)  3 brokkolístilkar Huntz tómatar í dós (saxaðir) með basilikku 1/2 laukur  1 hvítlauksrif Krydd: Hvítlaukskrydd, Maldon, Pipar, þurrkaður kóríander og chili duft.  Þessir borðuðu með bestu lyst undir yndislegum tónum þeirra bleiku. 
Uppskriftirnar


No comments:

Post a Comment